Framkvæmdir næsta árið
Hluta Laugavegar hefur nú verið lokað vegna framkvæmda í tengslum við fyrstu lotu borgarlínu. Um er að ræða kaflann frá Hlemmi upp að Katrínartúni og gert er ráð fyrir því að framkvæmdir standi fram á næsta vor.
Hefur verkinu verið skipt í þrjá áfanga til að minnka rask. Götur verða endurgerðar og verða lagðar sérakreinar sem eingöngu eru ætlaðar almenningssamgöngum og viðbragðsaðilum. Nýir hjóla- og göngustígar verða lagðir samhliða og lagnir endurnýjaðar.
Það eru Betri samgöngur sem standa að framkvæmdinni í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur. Á vef Betri samgangna kemur fram að áætlaður kostnaður hafi verið metinn tæpar 428 milljónir króna og fjögur tilboð bárust í verkið.
Lægsta tilboðið og verksamningurinn sem Betri samgöngur gerðu við Gröfu og Grjót og Malbikunarstöðina Höfða var hins vegar lægri eða tæpar 335 milljónir króna.
Heimild: Mbl.is












