
Fresta vinnu við brúna yfir Jökulsá fram á vor
Vegagerðin hefur frestað viðhaldsvinnu við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum í annað sinn þetta árið. Nú er stefnt að því að ljúka verkefninu í vor.
Áframhaldandi viðhaldsvinnu við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið frestað fram á vor. Samkvæmt áætlun átti að vera vinna við brúna fram í miðjan mánuð og umferð aðeins hleypt yfir í hollum nokkrum sinnum á dag, á meðan reglubundið viðhald færi fram.
Ekki verða þá frekari umferðartafir við brúnna vegna viðgerða þetta haustið.
Vætutíð hefur gert verkafólki erfitt fyrir við málningarvinnu og fleira, svo ákveðið var að fresta því sem eftir er. Ekki er búið að ákveða hvaða dag framkvæmdir hefjast að nýju.
Heimild: Ruv.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefst að nýju í næstu viku
Efni: Fresta vinnu við brúna yfir Jökulsá fram á vor











