Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við meðferðarkjarna á góðri leið

Framkvæmdir við meðferðarkjarna á góðri leið

111
0
Framkvæmdir við meðferðarkjarna á góðri leið
Mynd: NLSH ohf.

Framkvæmdir við meðferðarkjarna á góðri leið

Nú á haustmánuðum hefur starfsemin á verkstað meðferðarkjarnans aukist verulega og fjölgar starfsmönnum jafnt og þétt eftir því sem innanhússfrágangi á neðri hæðum vindur fram. Nú er unnið á öllum hæðum hússins samtímis og eru framkvæmdir komnar á það stig að fjölmargir verkþættir fara fram samhliða um allt mannvirkið.

„Megináhersla framkvæmda á neðri hæðum er nú vestanmegin í húsinu þar sem framvinda verksins miðast við þá tímalínu. Á síðustu vikum hefur vinna við innveggi, tæknikerfi og annan innanhússfrágang aukist verulega. Um 80 starfsmenn starfa nú á neðri hæðum hússins við innanhússfrágang og fer þeim ört fjölgandi. Samhliða því er unnið að ílögn lagna, uppsetningu rafkerfa, pípulagna og annarra tæknikerfa á flestum hæðum meðferðarkjarnans,“ segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur NLSH.

Vinna við innanhússfrágang á legudeildum á fimmtu og sjöttu hæð gengur vel.

Mynd: NLSH ohf.

„Nú eru starfsmenn tæplega 100 úr öllum iðngreinum, svo sem pípulagningamenn, rafvirkjar, blikksmiðir, múrarar, málarar, dúkarar og smiðir og áætluð verklok eru í janúar 2028,“ segir Sigurjón Sigurjónsson, staðarverkfræðingur NLSH.

Meðferðarkjarninn er eitt stærsta og tæknilega flóknasta mannvirki landsins, þar sem samhliða vinna margra sérgreina gerir miklar kröfur til tæknikerfa og samræmingar. Umfang innanhússfrágangs og uppsetningar tæknibúnaðar mun aukast verulega á næstu mánuðum.

Heimild: NLSH.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Þrjú fyrirtæki fá pípulagningaverk í meðferðarkjarna Nýs Landspítala

Efni: Framkvæmdir við meðferðarkjarna á góðri leið