Framkvæmd sem margborgaði sig
Þessi framkvæmd var umdeild á sínum tíma en átti svo sannarlega eftir að sanna gildi sitt,“ segir Sveinn Valfells, sem var forstjóri Steypustöðvarinnar hf. sem útvegaði efnið þegar Vesturlandsvegurinn um Kollafjörð var steyptur sumarið 1972. Slitlagið dugði í heil 54 ár en malbikað var yfir það í sumar, eins og fjallað var um hér í blaðinu fyrr í mánuðinum. Um Íslandsmet er að ræða.
– Bjuggust þið við þessari góðu endingu?
„Við veltum því ekkert fyrir okkur, að öðru leyti en því að við vissum að efnið sem við notuðum var óalkalívirkt og harðara og slitsterkara en gekk og gerðist á þessum tíma. Þess vegna komu engar alkalískemmdir í þessa steypu.
Við bjuggumst því við góðri endingu en kannski ekki að vegurinn dygði í meira en hálfa öld. Það var linara steypuefni notað á Reykjanesbrautina á svipuðum tíma sem dugði miklu skemur.“
Heimild: Mbl.is












