
Eitt flóknasta niðurrifsverkefni Íslandssögunnar
Það er einkennileg tilfinning að aka inn í Grindavík og sjá þar bæ, sem fyrir aðeins þremur árum var líflegt samfélag og heimkynni tæplega 4.000 íbúa, standa nærri tóman í dag. Flestar innkeyrslur eru auðar og inn um glugga allmargra húsa sem eftir standa sést að allt hefur verið flutt á brott; aðeins tómir veggir og ber gólf standa eftir.
Íbúafjöldi í Grindavík hefur tekið miklum breytingum vegna þeirra náttúruhamfara sem bærinn og íbúar hans hafa mátt þola. Þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023 þurftu allir íbúar bæjarins að yfirgefa heimili sín á svipstundu. Í dag eru skráðir íbúar með lögheimili í bænum aðeins um 900.
Heimild: Mbl.is











