Home Fréttir Í fréttum Ekki byggt fyrir þá efnaminni

Ekki byggt fyrir þá efnaminni

85
0
Ekki byggt fyrir þá efnaminni
Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, telur að stjórnvöld og skipulagsyfirvöld hafi vanmetið áhrif þéttingar byggðar á húsnæðisverð og lífsgæði. Morgunblaðið/Eyþór

Ekki byggt fyrir þá efnaminni

Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, hefur starfað í byggingariðnaði frá því að hann lauk sveinsprófi undir lok áttunda áratugarins. Á þeim tíma hefur hann séð íslenskan húsnæðismarkað gjörbreytast, frá tímum þar sem iðnmeistarar byggðu hverfin yfir í markað þar sem stór félög og fjárfestar ráða ferðinni. Að hans mati hefur þróunin haft víðtæk áhrif; íbúðir hafa orðið dýrari, húsnæði smærra og aðkoma fagmanna að skipulagi og hönnun minni.

Í samtali við blaðamann segir Jón að margt í þróun síðustu ára hafi verið fyrirsjáanlegt. Hann telur stjórnvöld og skipulagsyfirvöld hafa vanmetið áhrif þéttingar byggðar á húsnæðisverð og lífsgæði, á sama tíma og reglugerðir og leyfisveitingar hafi gert framkvæmdir þyngri og kostnaðarsamari.

Ekki verið að byggja fyrir þá efnaminni

Jón segir að þegar áhersla á þéttingu byggðar fór að mótast eftir hrun hafi hann strax haft áhyggjur af áhrifunum á almenning.

„Þá var þessi áhersla á þéttingu byggðar byrjuð og við fengum ekki lengur lóðir í hefðbundnum íbúðahverfum. Ég sagði strax að þarna yrðu byggðar mjög dýrar íbúðir og að við værum ekki að byggja fyrir þá efnaminni.“

Að hans mati hefur þetta gengið eftir. Hann segir kostnað við lóðir og framkvæmdir hafa hækkað svo mikið að erfitt sé að byggja íbúðir á verði sem venjulegt fólk ræður við. „Lóðirnar eru fáar, samkeppnin mikil og þær eru orðnar mjög dýrar. Í mörgum tilfellum þarf meira að segja að rífa eldri byggingar áður en hægt er að hefja framkvæmdir. Staðan er í raun orðin þannig að hundrað fermetra íbúð getur kostað tugi milljóna áður en fyrsta skóflustungan er tekin.“

Jón segir umræðuna hins vegar oft snúast um önnur atriði en þann kostnað sem liggur að baki húsnæðisverði. „Það er rifist um bílastæði, fjarlægð milli húsa og hvort það sé næg sól. En það er miklu minna talað um hversu mikil áhrif lóðaverð og skipulagskostnaður hafa á endanlegt íbúðaverð.“

Þótt víða séu kranar og framkvæmdir í gangi segir Jón að raunveruleikinn sé sá að byggt sé of lítið miðað við þörf samfélagsins. Hann segir hættuna felast í því að þegar eftirspurn taki við sér á ný muni verð hækka hratt aftur og ýta undir verðbólgu.

„Við höfum farið í gegnum þetta aftur og aftur. Þegar dregið er úr íbúðabyggingum til að ná niður verðbólgu myndast skortur. Þegar fólk fer síðan aftur að kaupa rýkur verðið upp.“

Að hans mati hefur Ísland verið fast í sama mynstri áratugum saman.

„Við erum í raun að fara sama hringinn og síðustu 40 til 50 árin. Það þarf að finna aðrar leiðir til að ná niður verðbólgu en að draga úr íbúðabyggingu.“

Smærri íbúðir og minna notagildi

Hátt lóðaverð hefur að mati Jóns einnig haft bein áhrif á stærð og hönnun nýrra íbúða. Til að halda verði innan ákveðinna marka séu íbúðirnar sífellt minnkaðar. „Þessar litlu tveggja herbergja íbúðir sem verið er að byggja í dag, ég hefði aldrei viljað búa í svona húsnæði. Rýmin eru svo þröng að maður situr nánast með sjónvarpið í fanginu og eldhúsborðið er alveg við sófann. Þetta er orðið svo þröngt að fólk getur varla lifað eðlilegu heimilislífi.“

Hann segir þróunina hafa gengið svo langt að stundum sé vart hægt að tala um hefðbundin svefnherbergi.

„Það eru íbúðir þar sem fólk þarf að ganga sitt hvorum megin við vegginn til að komast upp í rúm. Þetta getur gengið tímabundið, til dæmis meðan fólk er í námi, en að mínu mati er þetta ekki húsnæði sem fólk vill búa í til frambúðar.“

Á sama tíma telur hann að ýmislegt í nýbyggingum sé óþarflega kostnaðarsamt. Þar nefnir hann sérstaklega stórar geymslur í fjölbýlishúsum.

„Margt af því sem fólk setur í geymslu er í raun dót sem mætti alveg henda. Ég sá það sjálfur þegar ég vann við flutninga um helgar í æsku; stór hluti þess sem fólk geymdi endaði síðar í ruslinu.“

Niðurstaðan sé því einföld: „Ef fólk hefur pláss þá geymir það allt mögulegt. Mér finnst galið að borga nærri milljón krónur á fermetra fyrir geymslur.“

Þá segist Jón einnig velta fyrir sér hvers vegna þakíbúðir hafi orðið jafn vinsælar og raun ber vitni. „Ég skil ekki alveg hver ætlar að nýta þessar stóru þaksvalir á Íslandi. Þetta er dýrt fermetraverð fyrir rými sem fólk notar lítið stóran hluta ársins.“

Hann segist hafa séð dæmi um að eigendur hafi þurft að útbúa skjól í kringum heita potta á þaksvölum svo hægt væri að nýta þá.

„Það segir manni svolítið um hversu takmörkuð nýtingin er í íslenskri veðráttu.“

„Iðnaðarmennirnir eru orðnir undirverktakar“

Að mati Jóns varð grundvallarbreyting á byggingarmarkaðnum eftir bankahrunið. Áður hafi lóðum verið úthlutað á föstu verði til byggingarfyrirtækja og iðnmeistara sem sjálfir stóðu að framkvæmdum. „Þá voru meistararnir sjálfir að byggja. Þeir skipulögðu framkvæmdirnar og komu að hönnun og útfærslu húsanna.“

Í dag sé staðan önnur. „Núna eru fjárfestar og stór félög farin að kaupa heilu hverfin. Iðnaðarmennirnir eru orðnir undirverktakar sem framkvæma verkin en hafa minni áhrif á hvernig húsin eru hönnuð.“

Hann telur að þessi þróun hafi að einhverju leyti haft áhrif á gæði nýbygginga og þær athugasemdir sem reglulega heyrast um hljóðeinangrun og frágang. „Það eru vissulega margir sem gera þetta mjög vel. En það er líka hópur sem hugsar fyrst og fremst um að byggja sem ódýrast.“

Jón segir einn stærsta vanda greinarinnar vera skort á faglærðu fólki. „Það vantar fullt af iðnaðarmönnum og við þurfum að mennta miklu fleiri,“ segir Jón sem telur sérstaklega mikilvægt að fjölga konum í iðngreinum og bendir á að störfin hafi breyst mikið frá því sem áður var.

„Þetta er ekki lengur eins líkamlega erfitt og margir halda. Tæknin og vinnuaðferðirnar hafa þróast gríðarlega og það eru mikil tækifæri til að fjölga konum í þessum greinum.“

Gagnrýnir reglugerðir og leyfisveitingar

Þá er Jón harðorður í garð byggingarreglugerða og leyfisferla sem hann segir orðna of flókna og tímafreka.

„Kerfið er orðið svo þungt í vöfum að fólk hikar við að fara í einfaldar framkvæmdir. Það tekur allt of langan tíma að fá afgreiðslu og kröfurnar eru orðnar gríðarlega margar. Regluverkið hefur því þróast út fyrir það sem eðlilegt getur talist. Það þarf einfaldlega að vinda ofan af hluta þessara krafna.“

Jón segir mikilvægt að byggingariðnaðurinn taki þátt í umhverfisumbótum en telur umræðuna stundum fara út í öfgar þar sem horft sé á smáatriði fremur en heildarmyndina. Hann nefnir dæmi um framkvæmd þar sem gerð var krafa um notkun rafmagnsgröfu þrátt fyrir að aðstæður á svæðinu gerðu hleðslu hennar nær ómögulega. „Á endanum var grafan aldrei notuð. Þegar kolefnisspor framkvæmdarinnar var síðan reiknað kom í ljós að vinnuvélarnar voru innan við tíu prósent af heildinni. Samt var þetta stærsta málið í umræðunni.“

Hann telur slíkar áherslur geta aukið kostnað án þess að raunverulegur árangur náist. „Stundum verður þetta ákveðin sýndarmennska sem gerir framkvæmdir dýrari án þess að skila sambærilegum ávinningi.“

Sér ekki fram á stefnubreytingu

Þrátt fyrir gagnrýni sína á þróun síðustu ára telur Jón ólíklegt að stefnan breytist á næstunni. „Við höfum verið í þessum vítahring í áratugi og ég sé ekki að við séum að fara aðra leið núna.“

Hann telur líklegt að skortur á íbúðum muni aftur leiða til mikillar uppbyggingar eftir nokkur ár og að sama hagsveiflan endurtaki sig.

„Við erum alltaf að gera það sama. Við byggjum of lítið, verðið hækkar og svo reynum við að hlaupa á eftir markaðnum aftur. Eftir tíu ár verðum við líklega aftur komin á þann stað að allir eru að reyna að byggja sem mest vegna þess að það vantar íbúðir. Ég sé því miður ekkert sem bendir til þess að við séum hætt að fara í sama hringinn.“

Heimild: Mbl.is