
Baðlón í nýjum kjarna Keflavíkur
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík, hefur kynnt hugmyndir um enn meiri uppbyggingu í Keflavík.
Sagt var frá því á miðopnu ViðskiptaMoggans 9. júlí í fyrra að Steinþór undirbyggi mikla uppbyggingu við hótelið. Var þá rætt um að fjölga herbergjum á Hótel Keflavík um 100 þannig að það yrðu alls 177 herbergi á hótelinu og á nálægu gistiheimili. Samhliða stæði til að byggja upp nýja miðstöð ferðaþjónustu í Keflavík og íbúðir en vinnuheiti verkefnisins var KEF Center.
Steinþór hefur nú birt drög að því hvernig svæðið gæti litið út en arkitektastofan JEES, undir stjórn heimamannsins Jóns Stefáns Einarssonar, hefur undanfarin þrjú ár unnið með Steinþóri að heildarsýn KEF Center. Vatnsnes er hluti af þessum áformum en fyrst var sagt frá málinu í Víkurfréttum. Þess má geta að Vatnsneshúsið var nýverið opnað eftir gagngerar endurbætur.
Heimild: Mbl.is











