Útboð:
Vegagerðin hefur auglýst útboð vegna efnisvinnslu í fjórum námum á Vesturlandi fyrir árin 2026–2027.
Verkið felur í sér framleiðslu á alls um 20.000 rúmmetrum af efni fyrir vegaframkvæmdir á svæðinu.
Framleiða á malarslitlag og burðarlagsefni
Samkvæmt útboðslýsingu eru helstu magntölur verkefnisins:
- Malarslitlagsefni 0/16 – 16.000 m³
- Burðarlagsefni 0/45 – 4.000 m³
Fram kemur að verkinu skuli að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2027.
Tilboð afhent rafrænt í TendSign
Útboðsgögn verða aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 18. maí 2026.
Tilboðum skal skila rafrænt fyrir klukkan 14:00 þriðjudaginn 16. júní 2026.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verða bjóðendum kynnt nöfn bjóðenda og verðtilboð.












