
Brjóta land undir Keflavíkurborgir
Nýtt hverfi, Keflavíkurborgir, var meðal þess sem kynnt var á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar í gær. Þar gætu hátt í 300 lóðir rúmast þegar hverfið er fullbyggt.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist í samtali við mbl.is vonast til að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Hann játar aðspurður því að mikil þörf sé á fleiri íbúðum í Reykjanesbæ.
„Við finnum að ungt fólk og lítil og meðalstór fyrirtæki vilja fara í framkvæmdir á sérbýlislóðum,“ segir hann og bætir við:
„Við erum bara að undirbúa okkur að vera tilbúin fyrir þessa miklu uppbyggingu sem er hér og hafa íbúðir sem að fjölskyldufólk er að kalla eftir.“

Hátt í 300 íbúðir
Fyrsti áfangi Keflavíkurborga telur 4 til 5 götur eða 40 til 60 sérbýlishúsalóðir á 20 hektara svæði nyrst í sveitarfélaginu. Þar gætu um 300 íbúðir rúmast samkvæmt Vilhjálmi.
Hluti fyrsta áfangans er þegar kominn í aðalskipulag og áframhaldið í undirbúningi.
Stærra svæði er þó áætlað að verði brotið undir Keflavíkurborgir í framtíðinni.
Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar, kynnti áformin í Reykjanesbæ í dag. Hann sagði 14 sérbýlislóðir einnig vera klárar til úthlutunar á næsta ári í Trölladal og Asparlundi.

Milljarðaframkvæmdir
Stór framkvæmdaþörf sveitarfélagsins var rædd sem og fjárfestingaráform atvinnulífsins. Ýmis áform voru reifuð eins og bygging Myllubakkaskóla, stækkun fimleikahússins í bænum og lóðir fyrir atvinnuhúsnæði.
Áætlaðar fjárfestingar næstu árin eru tveir grunnskólar, tveir til þrír leikskólar, framkvæmdir við íþróttamannvirki, stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja auk mikilla framkvæmda í fráveitumálum, meðal annars ný hreinsistöð í Helguvík sem á að bera heitið Helga.
„Þetta eru milljarða framkvæmdir,“ sagði Guðlaugur.
Viljayfirlýsing um að flýta byggingu nýs sérbýlishúsnæðishverfis á Ásbrú verður jafnframt undirrituð af Daða Má Kristóferssyni fjármála- og efnahagsráðherra, Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco. Þar eru 37 sérbýlislóðir tilbúnar til úthlutunar.
Heimild: Mbl.is
Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Keflavíkurborgir verði nýtt hverfi í Reykjanesbæ
Efni: Brjóta land undir Keflavíkurborgir











