Home Fréttir Í fréttum Afturkalla lóðaúthlun til Félags múslíma á Íslandi

Afturkalla lóðaúthlun til Félags múslíma á Íslandi

56
0
Afturkalla lóðaúthlun til Félags múslíma á Íslandi
Lögð verður fram tillaga í borgarráði um afturköllun lóða til tveggja trúfélaga. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, fer fyrir tillögunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Afturkalla lóðaúthlun til Félags múslíma á Íslandi

Lögð verður fram tillaga í borgarráði á dag um að lóðaúthlutanir til Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar verði afturkallaðar.

Félag múslíma á Íslandi fékk úthlutaða lóð við Suðurlandsbraut 76 árið 2013. Borgin samþykkti árið 2021 byggingarleyfi fyrir 677,6 fermetra, tveggja hæða bænahúsi á lóðinni. Hins vegar hafa engar framkvæmdir hafist.

Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fékk upphaflega úthlutaða lóð við Mýrargötu 21–23 árið 2008. Lítil hreyfing varð á uppbyggingaráformum fyrr en á árunum 2020–2022, þegar skipulaginu var breytt, kirkjan minnkuð og turnum fækkað úr fimm í tvo.

Í báðum tilfellum fengu trúfélögin upphaflega þriggja ára frest til þess að hefja uppbyggingu.

Engin andmæli bárust

Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir að trúfélögunum hafi verið send bréf í sumar þar sem þeim gafst færi á að andmæla því að lóðaúthlutunin yrði afturkölluð. Engin andmæli bárust innan tveggja vikna og í því ljósi verður tillagan lögð fram í dag.

„Samkvæmt upphaflegum skilmálum var gefinn þriggja ára frestur til þess að hefja uppbyggingu en nú hefur enn engin uppbygging hafist. Það er því ástæðulaust að láta þessar lóðir vera með þessum hætti án þess að viðkomandi hafi sýnt neinn áhuga á því að byggja,“ segir Einar.

Einar segir að stefnt sé að því að selja lóðirnar á opnum markaði.

Heimild: Mbl.is

Sjá eldri frétt á BYGGINGAR.IS: Engin moska við Suður­lands­braut?

Efni: Afturkalla lóðaúthlun til Félags múslíma á Íslandi