
Nýir eigendur Álfabakka 8 í Mjódd áforma að stækka húsið um rúmlega sex þúsund fermetra.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í ósk um að á 1.000 fermetra svæði í nýbyggingunni verði innréttuð matvöruverslun.
Sambíóin ráku um árabil kvikmyndahús í byggingunni og um tíma var þar vinsælasti skemmtistaður borgarinnar, Broadway. Kvikmyndahúsinu var lokað fyrr á þessu ári eftir 44 ára rekstur.
Fjarskiptafyrirtækið Nova flytur í húsnæðið þar sem bíóið hefur verið til húsa. Nú er unnið að endurskipulagningu hússins og annast fasteignafyrirtækið Eignabyggð verkið.
Heimild: Mbl.is











