Útboð:
Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í frágang gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í frágang gangstétta í Haga- Holta- og Nesjahverfi á Akureyri. Verkið felst m.a. í lagningu jöfnunarlags og malbikun stétta, hellulögn úrtaka, hallandi hellulagðra kanta og staðsteypta kantsteina.
Helstu magntölur:
- Malbikun um 4.700 m2
- Jöfnun undir malbik um 4.700 m2
- Hellur um 120 m2
- Staðsteyptur kantsteinn um 1.150 m
Verkið er áfangaskipt, unnið á árunum 2026-2027 og skal að fullu lokið fyrir 30. september 2027.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá 22. apríl 2026.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila á útboðsvef Akureyrarbæjar, eigi síðar en miðvikudaginn 6. maí kl. 11:15.












