Sveitarfélagið Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum smíði steyptra undirstaða fyrir brú á Þverá við Odda á Rangárvöllum.
Helstu magntölur eru:
- Járnalögn í sökkla og stöpla 15350 kg
- Mót sökkla og stöpla 406 m2
- Steypa í sökkla og stöpla 161 m3
- Rofvörn við sökkla 340 m3
Verklok eru fyrir 1. október 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Rangárþingi ytra að Suðurlandsvegi 1 á Hellu og í Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 26. júní 2017. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17.júlí 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.