F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Birkimelur milli Hagatorgs og Hringbrautar. Göngu- og hjólastígur. Útboð nr. 14015.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Frá þriðjudeginum 27. júní 2017.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 11. júlí 2017.
Verkið felst í :
• Breytingu á gangstétt milli Hringbrautar og Hagatorgs í sameiginlegan stíg gangandi / hjólandi
• Þrengingu í götu við biðstöðvar
• Færslu á biðstöðvum strætó að vestan verðu í þrengingar
• Upprif á núverandi gangstéttum og hluta götu
• Endurnýjun hitaveitulagna að hluta
• Útskipting á götulýsingu
• Hellulagning í þrengingum og malbikun á sameiginlegum stíg
Helstu magntölur eru:
• Upprif: 1270 m2
• Fylling: 470 m3
• Hitaveitulagnir: 68 m
• Ljósastólpar: 14 stk
• Mulningur: 1090 m2
• Malbik: 1185 m2
• Hellulögn: 320 m2
• Kantsteinar: 315 m
• Stofntré: 10 stk
• Þökulögn: 135 m2
Lokaskiladagur verksins er 30. nóvember 2017.