Home Fréttir Í fréttum Héraðsverk og MVA buðu lægst í Berufjarðarbotn

Héraðsverk og MVA buðu lægst í Berufjarðarbotn

162
0
Mynd: Svavar Pétur Eysteinsson/ Ruv.is - Berufjarðjarbotn
Héraðsverk og MVA á Egilsstöðum buðu lægst í nýjan veg um Berufjarðarbotn en tilboð voru opnuð í gær. Þau buðu tæpar 843 milljónir sem er rúmum 35 milljónum yfir kostnaðaráætlun.

Næstlægsta boð var frá Suðurverki en var rúmum 113 milljónum yfir áætlun. Verkið felur í sér tæplega 5 kílómetra langan veg um Berufjarðarbotn, þar af 1 kílómetra um sjávarvog ásamt 50 metra langri brú. Nú þarf Vegagerðin að fara nánar yfir tilboðin en framkvæmdinni skal vera lokið 1. september á næsta ári.

<>

Heimild: Ruv.is