Home Fréttir Í fréttum Þekkt hótelkeðja í gamla sjónvarpshúsið

Þekkt hótelkeðja í gamla sjónvarpshúsið

238
0
Til stendur að opna 120 til 160 herbergja hótel í gamla sjónvarpshúsinu við Laugaveg. Verslunar- og veitingarými verða á jarðhæð hússins. Mynd: Reitir

Ef að líkum lætur mun þekkt alþjóðleg hótelkeðja opna sitt fyrsta hótel hér á landi í gamla sjónvarpshúsinu að Laugavegi 176. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Fasteignafélagið Reitir hefur að undanförnu átt í viðræðum við keðjuna og er stefnt að undirritun samninga síðar í sumar.

<>

Reitir vinna að því að breyta gamla sjónvarpshúsinu í hótel. Áform félagsins eru að stækka húsið þannig að það verði um 6.700 fermetrar að stærð, en húsið er nú um 4.100 fermetrar. Til stendur að rífa núverandi skemmu á baklóð hússins, byggja ofan á núverandi austurálmu og mögulega hækka húsið um eina hæð. Gert er ráð fyrir að fjöldi hótelherbergja verði á bilinu 120 til 160 auk verslunar- og þjónusturýma á jarðhæð.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita

Skipulagsyfirvöld í Reykjavík ákváðu í fyrra að efna til skipulagssamkeppni um reitinn ásamt nærliggjandi svæðum, þar á meðal athafnasvæði Heklu við Laugaveg og Brautarholt, en þar stendur til að byggja um 320 til 350 íbúðir á næstu árum. Um leið mun Hekla flytja höfuðstöðvar sínar í Suður-Mjódd. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr samkeppninni liggi fyrir síðar í mánuðinum.

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir í samtali við blaðið að í kjölfarið verði lagt mat á verðlaunatillöguna og útfærsla fundin sem allir hlutaðeigandi geti orðið ásáttir um. „Síðan verður unnið deiliskipulag á grundvelli tillögunnar og þegar þeirri vinnu er lokið geta menn hafið framkvæmdir.

Þetta er bara í ákveðnu ferli og við vonumst til þess að það haldi sínum takti og að við getum hafið framkvæmdir þarna fyrr en seinna,“ nefnir hann.

Ekki verður skrifað undir samninga við hótelkeðjuna fyrr en niðurstöður úr samkeppninni liggja fyrir og aðrar forsendur ganga eftir. Auglýst var eftir rekstraraðilum að hótelinu síðasta haust og reyndist áhuginn mikill. Heimildir Fréttablaðsins herma að þekkt alþjóðleg keðja, sem hefur aldrei rekið hótel á Íslandi, hafi orðið fyrir valinu og eru samningaviðræður langt komnar.

Fjölmörg fyrirtæki og samtök eru sem stendur í gamla sjónvarpshúsinu og má þar meðal annars nefna UNICEF á Íslandi, Red Chili, Sagaevents og Félag Sameinuðu þjóðanna.

Lauga­veg­ur 176 stend­ur meðfram sam­göngu- og þró­un­ar­ás þar sem áætlað er að hin nýja Borg­ar­lína muni liggja. Áðurnefnd samkeppni snýr að framtíðarskipulagi reitsins sem nær frá Lauga­vegi 168 til 176. Gerir Reykjavíkurborg ráð fyrir blandaðri byggð, íbúðabyggð og atvinnustarfsemi á svæðinu til framtíðar.

Heimild: Visir.is