Home Fréttir Í fréttum 05.09.2017 Hönnunarsamkeppni – hjúkrunarheimili Árborg

05.09.2017 Hönnunarsamkeppni – hjúkrunarheimili Árborg

82
0
Hjúkrunarheimili Árborg. Áætluð staðsetning

Framkvæmdasýsla ríkisins f.h. velferðarráðuneytisins og Sveitarfélagsins Árborgar býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um nýbyggingu hjúkrunarheimilis í Sveitarfélaginu Árborg nánar tiltekið á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi.

<>

Um er að ræða að hámarki 3250 m² byggingu sem staðsett verður á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 15. júní 2017 en því síðara 15. ágúst 2017. Skilafrestur tillagna er 5. september 2017 fyrir kl. 16:00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarupphæð 10 milljónir kr. og þar af verða fyrstu verðlaun að lágmarki 5 m.kr.

Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin sumarið 2018, framkvæmdir hefjist haustið 2018 og þeim verði lokið vorið 2020.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 20552 frá og með mánudeginum 29. maí 2017. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg á minnislykli, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku, á skrifstofu Ríkiskaupa Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:00.

Heimild: AI.is


KEPPNISLÝSING