Home Fréttir Í fréttum Faxaflóahafnir semja við Silicor vegna sólarkísilverksmiðju

Faxaflóahafnir semja við Silicor vegna sólarkísilverksmiðju

89
0

Fulltrúar Faxaflóahafna og bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Materials hafa undirritað samninga um lóð, lóðarleigu og afnot af höfn vegna fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga.

<>

Theresa Jester forstjóri og Gísli Gíslason hafnarstjóri undirrituðu fyrir hönd Silicor og Faxaflóahafna. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Skúli Þórðarson, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, vottuðu undirritunina.

Stefnt er á að hefja framkvæmdir haustið 2015 og framleiðslu á síðari hluta árs 2017. Áætlað er að um 450 manns starfi á Grundartanga á vegum Silicor.

Heimild: Vísir.is