12.5.2017
Hafnarsjóður Norðurþings og framkvæmdardeild Norðurþings óska eftir tilboð í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
· Jarðvinna, efnisvinnsla og fyllingar, alls um 86.000 m3
· Ídráttarrör fyrir rafmagn
· Fráveitu- og regnvatnslagnir
· Vatnslögn
· Steypa undirstöðu undir vigt
· Malbik, alls um 15.000 m2
· Girðingar og hlið
· Raforkuvirki
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2017.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Norðurþings, Ketilsbraut 7 – 9, 640 Húsavík og hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7, Reykjavík frá og með þriðjudeginum 16. maí 2017.
Verð útboðsgagna er 5.000,- kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. maí 2017 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.