Home Fréttir Í fréttum 17.05.2017 Fossvogsskóli, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi

17.05.2017 Fossvogsskóli, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi

167
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Fossvogsskóli, endurgerð lóðar 2017 – 2. áfangi. Útboð nr. 13898.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 13:00 miðvikudaginn 3. maí 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 þann 17. maí 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið er 2. áfangi í endurgerð lóðar Fossvogsskóla við Haðaland 26, 108 Reykjavík.  Í þessum áfanga er unnið norðan, austan og sunnan við skólann um það bil 4.200 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæðum.  Leiktæki verða endurnýjuð, aðgengi fyrir alla verður bætt. Hjólastæði verða yfirbygð að hluta.  Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, malbikun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnin af verktökum / aðilum á vegum söluaðila (leiktæja og yfirborðsefna) samhliða öðrum verkþáttum verktaka.
Framkvæmdatími – verklok
Verktaki þarf að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 1. júlí 2017 vegna uppsetningar leiktækja, fallvarnarefnis og gervigrass.  Uppsetning þeirra verður á vegum söluaðila búnaðarins á tímabilinu 2. júlí til 5. ágúst 2017.