Home Fréttir Í fréttum 16.05.2017 Brúarskóli, endurgerð lóðar 2017 – 1. áfangi

16.05.2017 Brúarskóli, endurgerð lóðar 2017 – 1. áfangi

109
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Brúarskóli, endurgerð lóðar 2017 – 1. áfangi .  Útboð nr. 13907.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 13:00 miðvikudaginn 3. maí 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.   Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 10:00 þann 16. maí 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar Brúarskóla við Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík.  Í þessum áfanga er lóð frístundarheimilisins Guluhlíð (austur hluti lóðarinnar) í forgrunni um það bil 3.400 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæðum.  Leiktæki verða endurnýjuð, aðgengi fyrir alla verður bætt.  Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, malbikun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnin af verktökum / aðilum á vegum söluaðila (leiktæja og yfirborðsefna) samhliða öðrum verkþáttum verktaka.  Í sumar verður einnig unnið að múrviðgerðum utan á Brúarskóla, en það verkefni á ekki að rekast á við þetta verk.
Verktaki þarf að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. ágúst 2017 vegna uppsetningar leiktækja, fallvarnarefnis og gervigrass.  Uppsetning þeirra verður á vegum söluaðila búnaðarins á tímabilinu 16. ágúst til 25. september 2017.