Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Vestursvæði 2017.
Helstu magntölur eru:
- – Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 567.882 m2
- – Yfirlögn með kílingu 60.000 m2
- – Flutningur steinefna 7.682 m3
- – Flutningur bindiefna 940 tonn
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og frá og með mánudeginum 20. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.