F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Grandaskóli – Viðgerðir á múrklæðningu 2017 Útboð nr. 13923.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 11:00 fimmtudaginn 16. mars 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella
„New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 miðvikudaginn 5. apríl 2017.
Verkið felst í:
að gera við og styrkja múrklæðningu (án einangrunar) á austurhlið og hluta suður- og norðurhliðar nýjasta hluta Grandaskóla (áf. 1997). Einnig felst í verkinu gluggaviðgerðir og málun gluggakarma, -pósta og opnanlegra faga.
Helstu magntölur eru:
| Verkþáttur: | Ein. | Magn | 
| Steinþrif og háþrýstiþvottur | m2 | 400 | 
| Viðgerðir á múrklæðningu | m2 | 400 | 
| Steining | m2 | 400 | 
| Sprungustyrking á eldra múrkerfi | m2 | 50 | 
| Endurnýjun glerlista | lm | 25 | 
| Málun karma, pósta og opnl. faga | lm | 25 | 
Verklok eru 11. ágúst 2017.
 
		 
	





