Home Fréttir Í fréttum Kynna nýjan grunn- og leikskóla í Dalshverfi í Innri Njarðvík

Kynna nýjan grunn- og leikskóla í Dalshverfi í Innri Njarðvík

176
0
Reykjanesbær

Kynning verður á nýjum grunn- og leikskóla í sal Akurskóla mánudaginn 20. mars kl. 17:30. Á sama tíma verður blásið til nafnasamkeppni um nafn á nýja skólann sem staðsettur verður í Dalshverfi í Innri Njarðvík.

<>

Farið verður yfir hvernig staðið var að undirbúningi hönnunar og tilaga arkitektastofunnar Arkís kynnt, en ákvaðið var að velja tillögu Arkís af þeim fimm sem bárust. Samdóma álit bygginganefndar var að velja tillögu Arkís til að vinna áfram með. Í þeirri tillögu þykja öll kennslurými mjög vel útfærð og að hugsað sé vel fyrir aðgengi og aðgangsstýringu, sér í lagi í tengslum við rýmin í hjarta byggingarinnar. Þar er gert  ráð fyrir félagsmiðstöð, tónlistarrými, fjölnota sal og matsal. Þá þykir góð tenging á milli leikskólans, yngsta stigs grunnskólans og frístundar, en skólinn verður bæði leik- og grunnskóli.

Heimild: Sudurnes.net