Veitur, Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Míla,óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
ENDURNÝJUN VEITUKERFA OG GÖNGULEIÐA 1. ÁFANGI 2017. GNOÐARVOGUR – NORÐUR BRÚN – HOLTSVEGUR:
Útboðsverkefnið felst í endurnýjun lagnakerfis hitaveitu, vatnsveitu, rafveitu og fjarskiptakerfa, fjarlægja eldri lagnir og lagnastokk. Endurnýja gangstéttir og ganga frá gróðursvæðum og bundnu slitlagi.
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum „VEV-2017-05- Endurnýjun veitukerfa og gönguleiða 1. áfangi 2017 Gnoðarvogur – Norðurbrún – Holtsvegur“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 23. febrúar 2017 kl 11:00.