Home Fréttir Í fréttum Búið að grafa 92,6% af Vaðlaheiðargöngum

Búið að grafa 92,6% af Vaðlaheiðargöngum

82
0

Vaðlaheiðargöng lengdust um alls 29 metra í síðustu viku og eru nú alls 6.673 metrar að lengd. Búið er að grafa 92,6 prósent af heildarlengd ganganna og eru einungis 533 metrar eftir.

<>

Samkvæmt Facebook-síðu Vaðlaheiðarganga var grafið 6,5 metra Eyfjarðarmegin en 22,5 metra í Fnjóskadal. Stefnt er að gegnumslagi í mars en verkið hefur tafist, og kostnaður þar af leiðandi aukist, vegna vatnsleka í göngunum bæði í Eyjafirði og í Fnjóskadal.

Myndband sem var birt á Facebook-síðunni rétt eftir hádegi sýnir verktaka Ósafls í göngunum bora í gegnum setlög.

19.01.2017 Vaðlaheiðargöng

Video frá Vaðlaheiðagöngum

Heimild: Visir.is