Home Fréttir Í fréttum Landsnet gefur út 200 milljóna dala skuldabréf

Landsnet gefur út 200 milljóna dala skuldabréf

104
0

Landsnet hefur gefið út óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 200 milljónir bandaríkjadollara sem svarar tæplega 23 milljörðum króna. Bréfin voru seld til alþjóðlegra fagfjárfesta í lokuðu útboði og munu ekki verða skráð í Kauphöll. Bréfin eru að stærstum hluta með gjalddaga eftir tíu til tólf ár og bera að meðaltali 4,56% fasta vexti. Fjármögnunin er liður í því að tryggja félaginu fjármagn á hagstæðum kjörum til lengri tíma, breyta samsetningu lána og draga úr gengisáhættu.

<>

Í tilkynningu frá Landsneti segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets þessa fyrstu erlendu skuldabréfaútgáfu Landsnets stórt skref og það sé ánægjulegt hvað fjárfestar sýndu félaginu mikið traust.„Skuldabréfaútgáfan skilar okkur hagstæðari kjörum auk þess sem dregið er úr gengisáhættu en félagið tók upp dollar sem uppgjörsmynt í ársbyrjun. Þá er lánstíminn lengri en almennt hefur tíðkast í erlendum lántökum síðustu árin. Við erum fyrsta orkufyrirtækið á landinu til að fara þessa leið í fjármögnun og er ánægulegt hvað kjörin sem okkur bjóðast eru hagstæð og móttökurnar góðar. Það er árangur mikillar og góðrar kynningar á bæði félaginu og Íslandi.“

Tilboð bárust fyrir ríflega 260 milljónir bandaríkjadollara og var ákveðið að tvöfalda útgáfuna vegna mikils áhuga fjárfesta og góðra kjara. Fjármögnunin er tekin í tveimur áföngum þar sem helmingur er greiddur núna og eftirstöðvar í mars næstkomandi.

Barclays banki plc hafði umsjón með skuldabréfaútgáfunni.

Heimild: Visir.is