Home Fréttir Í fréttum “Hæfilega sáttir“ með 120 milljón króna bætur vegna Húss íslenskra fræða

“Hæfilega sáttir“ með 120 milljón króna bætur vegna Húss íslenskra fræða

196
0
Grunnurinn hefur staðið óhreyfður í þrjú og hálft ár. VÍSIR/DANÍEL

Verktakafyrirtækið Jáverk mun fá 120 milljónir í skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna frestunar á framkvæmdum við Hús íslenskra fræða. Í nefndaráliti fjárlaganefndar um frumvarp til fjáraukalaga kemur fram tillaga um heimild til greiðslu bótanna. RÚV greindi fyrst frá þessu.

<>

Undirbúningur vegna byggingar Húss íslenskra fræða hófst í mars 2013 þegar Katrín Jakobsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tók fyrstu skóflustunguna að húsinu.

Byggingunni var ætlað að hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Þar áttu meðal annars að vera sérhannaðar geymslur fyrir skinnhandrit, lesstofur fyrir nemendur skólans, bókasafn auk fyrirlestra- og kennslusala.

Framkvæmdirnar voru hins vegar settar á ís þegar ný ríkisstjórn tók við árið 2014 en hún gerði ekki ráð fyrir áframhaldandi vinnu við bygginguna í fjárlögum.

Mynd: arnastofnun.is
Mynd: arnastofnun.is

Nær yfir hluta tjónsins
Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks, segist hæfilega sáttur með skaðabæturnar. „Við erum bara nokkuð sáttir. Við hefðum þó helst viljað fá verkið og að ríkið hefði efnt samning sinn við okkur,“ segir hann.

Að sögn Gylfa er tjón fyrirtækisins nokkurt og ná bæturnar aðeins til hluta þess tjóns sem Jáverk hefur orðið fyrir.

Grunnurinn, sem stendur við Arngrímsgötu gegnt Landsbókasafni Íslands, hefur staðið óhreyfður síðan 2013. Ekki er gert ráð fyrir fjármögnun framkvæmdanna í fjárlögum næsta árs en þó kemur fram í fjármálaáætlun fyrir árin 2017 til 2021 að byggingu hússins skuli ljúka á því tímabili.

Þar kemur fram að heildarkostnaður við framkvæmdirnar sé áætlaður 4,2 milljarðar króna og þar af eigi 3,7 milljarðar eftir að falla til á áætlunartímabilinu.

Illa farið með opinbert fé
Þegar ljóst var að ný ríkisstjórn ætlaði ekki að gera ráð fyrir framkvæmdum við Hús íslenskra fræða í fjárlögum fyrir árið 2014 bar Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, upp fyrirspurn varðandi kostnað vegna skaðabóta til verktaka.

Í frétt RÚV er greint frá því að Haraldur Benediktsson, formaður fjárlaganefndar, viðurkenni að greiðsla bótanna af hálfu ríkisins sé ekki góð meðferð á opinberu fé.

Heimild: Visir.is