28.11.2016
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir norðan við Marargötu í Vogum og í Breiðagerðisvík á Vatnsleysuströnd.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og kjarna um 2.600 m³
- Upptekt og endurröðun um 450 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. maí 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 28. nóvember 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. desember 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.