Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í byggingu á nýjum íþróttasal við Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Verkið nær til að byggingar íþróttasalar og fullnaðarfrágangs að utan sem innan ásamt frágangi lóðar. Stærð íþróttasalar með áhaldageymslum og tæknirýmum eru 2.411 m2 .
Helstu magntölur eru:
- Mót 3.440 m2
- Steypa 778 m3
- Steypustyrktarstál 63.000 kg
- Stálvirki í þaki 70.800 kg
- Álklæðning 897 m2
- Þakeiningar 1.650 m2
Byggingu íþróttasalar skal vera lokið og hann tekinn í notkun 2.febrúar 2018 en endanlegum frágangi á lóð skal vera lokið eigi síðar en 1.júlí 2018. Útboðsgögn verða eingöngu afhent rafrænt á verkefnavef verksins. Lykilorð að útboðsgögnum veitir Samúel Guðmundsson, sími: 695 3264 , netfang: samuel@thg.is
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hauka, Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum 1, 221 Hafnarfirði þriðjudaginn 6. desember n.k. kl. 12 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.