Home Fréttir Í fréttum Fyrsta græna vinnuvél Íslands

Fyrsta græna vinnuvél Íslands

242
0
Komatsu HB365LC Hybrid.

Umræðan um umhverfisvæna bíla hefur verið áberandi á undanförnum árum en framleiðendur vinnuvéla hafa líka verið duglegir í þessari þróun í átt að umhverfisvænum vélum. Sem dæmi hefur Komatsu boðið uppá úrval Hybrid vinnuvéla í þónokkur ár en Íslendingar hafa ekki fjárfest í svona umhverfisvænum vélum fyrr en nú.

<>

Í vikunni kom fyrsta græna vinnuvélin til Íslands og er hún af gerðinni Komatsu HB365LC sem er 36 tonna beltagrafa. Vélin var afhent nýjum eiganda í gær, fimmtudaginn 10. nóvember. Kaupandinn af vélinni er Ingileifur Jónsson ehf. Eldsneytissparnaður við notkun þessarar vélar, borið saman við hefðbundnar Komatsu gröfur er 20-30% og munar um minna.

Heimild: Visir.is