Home Fréttir Í fréttum Blússandi framkvæmdir framundan í borginni

Blússandi framkvæmdir framundan í borginni

92
0
Mynd: Reykjavik.is

Eftir margra ára kreppu í fjárhag Reykjavíkur boðar borgarstjórnin bjartari tíð með viðsnúningi í rekstrinum. Frumvarp til fjárhagsáætlunar 2017 var kynnt í dag með afgangi, án þess þó að hækka skatta.

<>

Gert er ráð fyrir að 1,8 milljarða króna afgangur verði af rekstri A-hluta borgarsjóðs á næsta ári. Þetta er algjör viðsnúningur frá síðasta ári þegar reksturinn var neikvæður um 13,6 milljarða. Þá gerir meirihlutinn í borgarstjórn ráð fyrir stigbatnandi afkomu samstæðu Reykjavíkurborgar næstu fimm árin, með 15,6 milljarða afgangi á næsta ári miðað við fimm milljarða halla í fyrra.

Skorið inn að beini eftir hrunið
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að svigrúmið sem hafi tekið að myndast um mitt þetta ár verði áfram nýtt til að efla skólastarf, velferð og grunnþjónustu. „Hlutir eins og viðhald fasteigna, skóla og leikskóla, malbikið á götum borgarinnar, þetta eru hlutir sem voru skornir alveg inn að beini í kjölfar hrunsins og þar erum við líka í skuld,” segir Dagur.

„Við áttum okkur alveg á því að það eru miklar óskir um meira. Og vonandi, ef okkur tekst að halda áfram á sömu braut, getum við orðið við þeim í áföngum á næstu árum.”

Mikið framkvæmdaár framundan
Með lækkandi skuldahlutfalli á næsta ári fullyrðir meirihlutinn að fjárhagur borgarinnar sé traustur. „En það er vegna þess að við höfum náð þessum rekstrarárangri og við megum ekki slaka á klónni.“ segir Dagur. „Það er ekki komið neitt góðæri hjá sveitarfélögunum, þó að ytri skilyrði séu að mörgu leyti góð.

Afkoman næstu ár verður studd með tekjum af söluhagnaði og sölu byggingarréttar. Meirihlutinn telur mikið sóknarfæri í rekstrinum og framundan er metár í byggingu íbúða.

„Auk þess sem við erum aðvitað að fylgja eftir uppbyggingunni í borginni. Öll þessi hverfi sem verið er að byggja upp og atvinnusvæði, þar komum við og gerum götur, gangstéttar og hjólastíga og svo framvegis. Þannig að þetta verða mikil fjárfestinga- og framkvæmdaár í borginni, enda er Reykjavík í örum vexti.“

Heimild: Visir.is