Home Fréttir Í fréttum Smiður sem lenti í vinnuslysi fær ekki bætur

Smiður sem lenti í vinnuslysi fær ekki bætur

206
0

Smiður sem lenti í vinnuslysi í ágúst 2013 með þeim afleiðingum að sex sinar skárust í sundur fær ekki bætur. Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli mannsins á hendur vinnuveitanda hans.

<>

Maðurinn sem er lærður húsasmíðameistari var að störfum í skrifstofuhúsnæði þegar slysið átti sér stað. Var maðurinn ásamt samstarfsmanni sínum að fjarlægja glervegg þegar glerið brotnaði og hlaut hann við það alvarleg skurðsár á framhandleggjum.

Læknisfræðileg örorka 40 stig
Í vottorði frá lækni kom fram að sex sinar, auk sveifarslagæðar, hafa skorist í sundur á hægri framhandlegg og ein sin í vinstri úlnlið. Í kjölfar slyssins gekk maðurinn undir örorkumat þar sem varanleg læknisfræðileg örorka var metin 40 stig.

Smiðurinn byggði mál sitt aðallega á því að Stefnandi kveðst vinnuveitandi hans hafi brotið gegn þeirri eftirlitsskyldu sem vinnuveitandi hafi á vinnustað. Eðlilegt hefði verið að draga úr hættu við verkið með forvörnum, s.s. hlífðarbúnaði

Í lófa lagið að forða slysinu
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þessu rök mannsins. Sagði dómurinn að manninum hafi mátt vera ljóst að hætta gat verið samfara verkinu, ekki síst með hliðsjón af menntun hans og starfsreynslu. Þá segir einnig að manninum og samstarfsmanni hans hafi verið í lófa lagið að haga vinnu sinnig þannig að komast hefði mátt hjá því að glerið brotnaði.

Taldi dómurinn að ekki hefði verið sýnt fram á að slysið sem maðurinn varð fyrir verði rakið til þess að starfsaðstæðum hafi verið ábótavant eða að vinnuveitanda hans hafi vanrækt að tryggja öryggi á vinnustað samkvæmt ákvæðum laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Heimild: Visir.is