Home Fréttir Í fréttum Sá sem var næstur í röðinni á Bæjarins bestu æpti á alla...

Sá sem var næstur í röðinni á Bæjarins bestu æpti á alla að koma sér í burtu

157
0
Mynd: VÍSIR/GVA

„Þetta var svaka dynkur,“ segir Skúli Þórðarson, starfsmaður Bæjarin bestu, um byggingarkranann sem féll á nýbyggingu og yfir á planið við pylsuvagn Bæjarins bestu í Hafnarstræti á tólfta tímanum í morgun.

<>

„Kraninn lenti rétt hjá okkur og hlassið sem var í krananum lenti beint fyrir aftan vagninn,“ segir Skúli sem var við afgreiðslu þegar þetta átti sér stað. Nokkrir voru í röðinni við vagninn um þetta leyti, þó færri en vananlega á þessum tíma dags, en sá sem var næstur í röðinni byrjaði að vara alla við og æpti á fólk að koma sér í burtu.

Þar á meðal Skúla sem var sjálfur í vagninum að afgreiða pylsur af sinni alkunnu snilld. „Ég vissi ekkert hvað var að gerast,“ segir Skúli í samtali við Vísi en til allrar hamingju fór allt vel og urðu engin slys á fólki.

Vagninn er lokaður núna í hádeginu eftir þetta atvik en lögregla hefur girt svæðið af. Ekki er hægt að vera við hann og hvað þá í honum fyrr en búið er að hífa kranann í burtu sem hangir nú á stillansinum við hótelið.

Skúli segir að miðað við þyngdina á hlassinu þá var mikil lukka að það lenti ekki á vagninum.

„Vagninn hefði farið í mask ef þetta hefði lent á honum.“

Timburbúnt í krananum
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hafði nýyfirgefið vettvanginn þegar blaðamaður náði af honum tali.

Mynd: VÍSIR/GVA
Mynd: VÍSIR/GVA


„Það er með ólíkindum að ekki hafi orðið slys á fólki,“ segir hann í samtali við Vísi. Ekki liggi fyrir hvað hafi orðið til þess að kraninn féll en mögulega hafi einn fótur kranans gefið sig.

Timburbúnt hékk í krananum og féll rétt við pylsuvagninn.

„Það munaði ekki miklu að þetta hefði lent ofan á vagninum.“

Heimild: Visir.is