Framkvæmdir við Borgarlínu um Hlemm og á hluta Laugavegar að Katrínartúni hafa verið boðnar út og áætlað að vinna við þær hefjist í maí. Óhætt er að segja að nú í vor sé árangur undirbúnings síðustu ára fyrir Borgarlínuna loks að skila sér. Betri samgöngur hafa þegar auglýst nokkur útboð fyrir Borgarlínuna og önnur verða auglýst á næstu vikum. Hluti útboðs Reykjavíkurborgar fyrir Hlemmtorg fyrr í vikunni er gerð sérakreina fyrir Borgarlínu og uppsetning tveggja Borgarlínustöðva þar.
Borgarlínu útboðin sem um ræðir eru annars vegar fyrstu framkvæmdaútboðin á götuleggjum, þ.e.a.s. fyrstu framkvæmdaútboðin fyrir utan útboðið á Fossvogsbrú sem lauk með verksamningi í nóvember. Framkvæmdir við brúarsmíðina sjálfa eru að hefjast og vinnu við landfyllingar lýkur í sumar.
Hins vegar eru útboð fyrir ýmsa efnisútvegun fyrir framkvæmdirnar, þ.e. götulýsingu, umferðarljós, kantsteina, tré og skýli á stöðvar. Í febrúar var einnig auglýst útboð fyrir rammasamning um eftirlit með gatnaframkvæmdum.
Í mars voru auglýst eftirfarandi útboð:
- Útboð á for- og verkhönnun Borgarlínu um Hí svæðið, Skothúsveg og Fríkirkjuveg og Borgarlínu um Kársnes, þ.e. Bakkabraut og Borgarholtsbraut.
- Innkaup á graníti fyrir kantsteina á stöðvum og millileggsteina milli hjóla- og göngustíga.
- Framkvæmdir á Laugavegi frá Hlemmi að Ásholti.
- Forval fyrir for- og verkhönnunarútboð fyrir Lotur 2-6.
Í apríl verða eftirfarandi útboð auglýst:
- Framkvæmdir á Nauthólsvegi, um HR og á Laugavegi á milli Ásholts og Bolholts.
- Innkaup á skýlum fyrir stöðvar Borgarlínu.
- Innkaup fyrir götulýsingu.

Í maí verða eftirfarandi útboð auglýst:
- Framkvæmdir Borgarlínu um Nauthólsvík og Vesturvör í Kópavogi. Um er að ræða stutta leggi sem eru tengingar Borgarlínu og göngu- og hjólastíga við Fossvogsbrú.
- Innkaup fyrir umferðarljós.
- Fyrsti hluti útboðs fyrir rammasamning um innkaup á trjám fyrir göturými Borgarlínu.
Í júní er svo áætlað útboð fyrir framkvæmdir á Stórhöfða á efra svæði Ártúnshöfða og brúar sem mun tengja saman efra og neðra svæði Ártúnshöfða. Á brúnni verða sérakreinar Borgarlínu, akreinar fyrir bílaumferð, hjólastígar og göngustígar.

Heimild: Borgarlinan.is












