Home Fréttir Í fréttum 13.05.2026 Rafkerfi hæðir K2 – 4 hæð meðferðarkjarna fyrir NLSH

13.05.2026 Rafkerfi hæðir K2 – 4 hæð meðferðarkjarna fyrir NLSH

94
0
Ljósmynd/NSLH

Nýr Landspítali ohf., kt. 500810-0410, Vatnsmýrarvegi 22, 101 Reykjavík, (hér eftir nefndur „verkkaupi“ eða ”kaupandinn”) óskar eftir tilboðum í útboði á rafkerfum í kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík (sjá www.nlsh.is).

Í þessu almenna útboði óskar Nýr Landspítali ohf. (NLSH) eftir tilboðum í raflagnir í kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík, sem flokkast undir opinberar framkvæmdir samkvæmt lögum 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda.

Stærð nýs meðferðarkjarna er um 71 þúsund fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 2 hæðir neðanjarðar (K1 og K2). Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum en megin hluti legudeilda á 5.-6. hæð er undanskilinn í þessu útboði. Þó mun rafverktaki sjá um ákveðinn endabúnað sem settur verður upp á legudeildunum og stýringar og prófanir á öllum tæknkerfum þar. Ákveðin sérmerkt rými verða jafnframt ekki hluti af raflögnum þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða endanlegar ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs. Í þeim tilfellum er miðað við að verktaki annist tengingar að þessum rýmum skv. nánari skilgreiningu sem koma fram í útboði.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að gera samning við verktaka um viðbótarverk, s.s. um raflagnir á þessum sérmerktu svæðum í meðferðarkjarna sem ekki eru hluti af útboði þessu og eftir atvikum öðrum þeim verkefnum á sviði rafkerfa sem nauðsynlegt er að framkvæma í samræmi við heimildir í lögum um opinber innkaup. Á sama hátt áskilur verkkaupi sér til að fella niður verkþætti sem kemur í ljós að eru betur fallnir til annarra samningsverka vegna samhæfingar, tímalínu heildarverks og samlegðarsjónarmiða í jafn stóru húsi og um ræðir.

Ístak hf. er stýriverktaki verksins auk þess að sjá um innanhúss frágang á hæðum K2-4h og hefur stýriverktaki þegar hafið störf þegar þetta útboð er auglýst.

Verkkaupi hefur jafnframt þegar boðið út aðaltöflur og skinnustokka fyrir meðferðarkjarna, rannsóknahús og bílastæða- og tæknihús og gert samning við verktakann VHE ehf. til að annast þá framkvæmd.

Þeir verkþættir sem falla undir þetta útboð eru eftir sem áður mjög umfangsmiklir og snúa að frágangi rafkerfa á um 55þ. fermetrum.

Má í þessu sambandi nefna:

  • Hefðbundnar lág og smáspennulagnir
  • Ljósabúnað og lýsingarkerfi
  • Ljósastýringarkerfi
  • Helstu smáspennukerfi, t.a.m.
  • Gagnaflutningskerfi
  • Loftnetskerfi (Tetra/GSM)
  • Rýmingarkerfi
  • Brunaviðvörunarkerfi
  • Aðgangs- og innbrotaviðvörunarkerfi
  • Árásar- og neyðarboðkerfi
  • Öryggismyndavélakerfi
  • Gasslökkvikerfi
  • Hússtjórnarkerfi lagna og loftræsingar
  • Deilhönnun ýmissa smáspennukerfa, t.a.m. hústjórnarkerfis

Fyrirkomulag útboðs er þannig að bjóðendur skulu skila inn tilboði í frágangi rafkerfa fyrir K2 til og með 4. hæð meðferðarkjarna ásamt stýringum og endabúnaði á 5. og 6. hæð skv. útboðsgögnum þessum.

Sjá frekar.