Home Fréttir Í fréttum 17.04.2026 Úlfarsárdalur við Leirtjörn – Yfirborðsfrágangur 2026

17.04.2026 Úlfarsárdalur við Leirtjörn – Yfirborðsfrágangur 2026

108
0
Leirtjörn.Mynd: mbl.is/sisi

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Úlfarsárdalur við Leirtjörn – Yfirborðsfrágangur 2026, útboð nr. 16293.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í megindráttum í heildarfrágangi ofanvatnsrása og gerð gangstétta. Innifalið er afmörkun með kantsteini, endurnýjun á grasi og grágrýtishleðslum, gerð gróðurbeða og gróðursetning. Einnig skal ganga frá gangstéttum með steypu, hellulögn og uppsetningu ljósastaura.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00 þann 27. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 17. apríl 2026.