Umhverfis- og mannvirkjasvið fyrir hönd Akureyrarbæjar, óska eftir tilboðum í arkitekta- bruna-, hljóðvist- lóðarhönnun, deiliskipulagsbreytingar, hönnunarstjórn o.fl. fyrir íþróttahús og félagsaðstöðu á félagsvæði Þórs við Skarðshlíð á Akureyri. Verkfræðihönnun svo sem burðarþols, lagna- og rafmagnshönnun verður boðin út í sér útboðum þegar forhönnun arkitekts liggur fyrir.
Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 18. mars 2026.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 10:00 föstudaginn 17. apríl 2026.












