Home Fréttir Í fréttum Umdeildum framkvæmdum lokið

Umdeildum framkvæmdum lokið

94
0
Eftir margra ára framkvæmdir var ráðist í endurnýjun á Vatnsstíg sem átti að ljúka í ágúst. Það tafðist nokkuð en nú er verkinu lokið. mbl.is/Árni Sæberg

Framkvæmdum við Vatnsstíg í Reykjavík lauk nýlega en þær voru umdeildar meðan á þeim stóð. Íbúar og fyrirtækjaeigendur voru orðnir verulega þreyttir á ónæði og stjórnleysi sem þeir sögðu að hefði einkennt þessa framkvæmd.

Á Facebooksíðu Veitna eru birtar myndir af svæðinu fyrir og eftir að framkvæmdum lauk. Þar kemur fram að allar lagnir hafi verið endurnýjaðar en þær elstu voru frá árinu 1915.

Til vinstri má sjá hvernig Vatnsstígur leit út fyrir endurbætur en til hægri hvernig gatan lítur út í dag. Samsett mynd/Veitur

Verkið tafðist nokkuð og upphaflega var gert ráð fyrir að skiladagur gatnaframkvæmda væri 22. ágúst á síðasta ári. Fullnaðarfrágangi átti svo að ljúka í janúar.

Heimild: Mbl.is