Home Fréttir Í fréttum Ívera að stækka eignasafnið um 476 íbúðir

Ívera að stækka eignasafnið um 476 íbúðir

39
0
Egill Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Íveru. Ljósmynd: Samsett

Fasteignafélagið Ívera hagnaðist um 2,1 milljarð króna á árinu 2025.

Fasteignafélagið Ívera, sem hét áður Heimstaden, hagnaðist um rúmlega 2,1 milljarð króna í fyrra, samanborið við 915 milljóna króna tap árið áður.

Stjórn Íveru leggur til að greiddur verði út 95 milljóna króna arður til hluthafa á árinu 2026, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi.

Leigutekjur féalgsins námu tæplega 4,7 milljörðum króna í fyrra, sem samsvarar 7,9% vexti frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir (EBITDA) nam 3,3 milljörðum króna og jókst um 11,8% milli ára.

Eignir Íveru námu 86,3 milljörðum króna í lok árs 2025 og hækkuðu um 12,3 milljarða milli ára. Eigið fé í lok árs nam 47,9 milljörðum króna og hækkaði um 17 milljarða milli ára. Í apríl 2025 var hlutafé félagsins aukið um 5 milljarða.

Stefna að því að eiga 3 þúsund íbúðir

Íbúðir í eigu félagsins voru 1.668 í árslok og fjölgaði um 182 íbúðir á árinu. Samhliða því jókst heildarfermetrafjöldi í íbúðasafni samstæðunnar um 11.046 fermetra.

Egill Lúðvíksson, forstjóri Íveru, segir félagið horfa áfram til þess að þróa og stækka eignasafn félagsins á komandi árum í átt að 3.000 íbúðum.

Fram kemur að félagið hafi gengið frá samningum um uppbyggingu samtals 476 nýrra íbúða til viðbótar við núverandi eignasafn sem verða byggðar á næstu árum.

Umræddar íbúðir eru m.a. í Móabyggð í Þorlákshöfn, á Þórðarhöfða í Reykjavík, að Sunnumörkum í Hveragerð og við Stefnisvog í Reykjavík.

Ívera gekk á árinu 2025 frá kaupsamningum á öllu hlutafé í þremur félögum sem eiga fjölbýlishús að Vallhallarbraut 738 á Ásbrú með samtals 40 íbúðum, fjölbýlishús að Snorrabraut 54 í Reykjavík með samtals 39 íbúðum og einu atvinnurými, og fjölbýlishús að Eskiás 8 í Garðabæ með samtals 29 íbúðum.

Ívera seldi í lok árs 2024 120 íbúðir á Akureyri til dótturfélags KEA fyrir rúma 5 milljarða króna. Fasteignafélagið sagði söluna lið í endurskipulagningu eignasafnsins.

SRE III, sjóður í stýringu hjá Stefni sem er að fullu fjármagnaður af íslenskum lífeyrissjóðum, gekk frá kaupum á Heimstaden ehf. í apríl 2024 af sænska fasteignafélaginu Heimstaden. Strax í kjölfar kaupanna var tilkynnt um að stefnt yrði að tvöfalda eignasafnið upp í u.þ.b. 3 þúsund íbúðir.

Samkvæmt síðasta ársreikningi SRE III eru stærstu hluthafar sjóðsins Gildi, LIVE og LSR með 18,2% hlut hver. Þar á eftir kom Birta með 11,3% hlut og Stapi með 9,1% hlut.

Í desember 2025 lauk Ívera sinni fyrstu skuldabréfaútgáfu með sölu á nýjum skuldabréfaflokki, IVERA 111235, að fjárhæð 5 milljarðar króna. Um er að ræða verðtryggt vaxtagreiðslubréf til 10 ára með föstum 3,55% vöxtum.

Heimild; Vb.is