Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.03.2026 Veitur ohf. : VEU-2603-0026 Klettagarðar – endurbætur á grjótgildru

26.03.2026 Veitur ohf. : VEU-2603-0026 Klettagarðar – endurbætur á grjótgildru

64
0
Mynd: Veitur ohf.

Veitur ohf. óska eftir tilboðum í verkið: VEU-2603-0026 Klettagarðar – endurbætur á grjótgildru

Í Klettagörðum reka Veitur stærstu hreinsistöð landsins. Til stendur að fara í endurbætur á grjótgildru stöðvarinnar en grjótgildran er niðurgrafið steypt mannvirki sem stendur á lóð stöðvarinnar og tekur við hluta af innrennsli stöðvarinnar.

Verkefnið fellst í eftirfarandi verkþáttum:

Saga úr þaki núverandi mannvirkis og stækka þau þjónustuop sem nú þegar eru til staðar. Verktaki skal útvega og setja upp nýja lúgu með viðeigandi fallvörnum eins og þeim er lýst í verklýsingu þessari.

Smíða og setja upp nýjan göngupall yfir grjótgildru skv. teikningum.

Byggja við grjótgildru stigahýsi sem býr til aðgengi inn í grjótgildru skv. teikningum. Saga þarf hurðarop í vegg grjótgildrunar og útvega og setja upp vatnshelda hurð sem tengir saman grjótgildru og stigahýsi.

Útvega eða smíða 4 stk. rafdrifnar rennilokur og setja upp í rásum grjótgildrunar.

Smíða rör ofan í grjótgildru með hraðtengi á enda fyrir tengingar dælubíla. Á rörið skal koma fyrir rafdrifnum hnífaloka.

Athugið að þar sem ekki er mögulegt að stöðva rennsli um grjótgildruna eða beina því í annan farveg er verkið unnið með rennsli rennur í gegnum mannvirkið sem eykur flækjustig verkefnisins.

Sjá  nánari upplýsingar í útboðsgögnum.

Sjá frekar.