Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 19.03.2026 Yfirborðsfrágangur gatna Bláskógabyggð

19.03.2026 Yfirborðsfrágangur gatna Bláskógabyggð

53
0
Mynd: Bláskógabyggð

Bláskógabyggð óskar eftir tilboðum í yfirborðsfrágang gatna í Reykholti í samræmi við útboðsgögn.

Um er að ræða jöfnun styrktarlags og burðarlags auk malbikunar og lagningu kansteina í Reykholti.

Helstu magntölur eru eftirfarandi:

  • Jöfnun styrktarlags: 2.500 m2
  • Burðarlag 0/22 mm: 250 m3
  • Malbikun götu Y11: 1.920 m2
  • Malbikun gangstétt Y8: 480m2
  • Kantsteinar: 480 m

Verklok 31. júlí 2026.

Útboðsgögn verða afhent á stafrænu formi (.pdf) með tölvupósti. Beiðnir um afhendingu útboðsgagna skulu sendar á netfangið kristofer@blaskogabyggd.is þar sem fram koma upplýsingar um nafn, netfang og símanúmer bjóðanda auk upplýsinga um tengilið. Tilboðum skal skilað eigi síðar en fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 11:00, í samræmi við upplýsingar í útboðsgögnum og verða tilboð opnuð á þeim tíma í fundasal sveitarstjórnar í Aratungu.

Bláskógabyggð