Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.03.2026 Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) – Gatnagerð og lagnir

26.03.2026 Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) – Gatnagerð og lagnir

6
0
Naustin eins og gatan er núna. Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Naustin (Tryggvagata-Hafnarstræti) – Gatnagerð og lagnir, útboð nr. 16246.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í endurgerð Nausta á milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu. Verkið felst í að grafa og fylla í götu, grafa og fylla vegna fráveitu- vatnsveitu,- hitaveitu-, og götulýsingarlagna, leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu- og götuljósalagnir, reisa ljósastólpa, leggja grágrýtiskant, leggja hellur og ganga frá gróðursvæðum. Leggja skal snjóbræðslulagnir undir hellulögn götu, ganga frá yfirborði með götugögnum í samræmi við útboðsgögn.

Áætluð lok framkvæmdatíma: 1. desember 2026.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00 þann 3. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 26. mars 2026.