Home Fréttir Í fréttum Áforma byggingu 18 kúluhúsa í Snókalöndum

Áforma byggingu 18 kúluhúsa í Snókalöndum

19
0
Á þessari teikningu sést möguleg staðsetning kúluhúsanna.

Áform eru uppi um byggingu allt að 18 kúluhúsa í Snókalöndum, sem eru í landi Hafnarfjarðar, en húsin eru hugsuð fyrir stjörnu- og norðurljósaskoðun.

Húsunum er ætlaður staður við Bláfjallaveg ofan Hafnarfjarðar, skammt austan við gatnamót Bláfjallavegar og Krýsuvíkurvegar. Tillaga um breytingu á deiliskipulagi þessa efnis var samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í síðustu viku og er nú til kynningar á skipulagsgátt.

Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir nýjum byggingarreit á svæðinu, en kúluhúsin 18 sem þar er ætlunin að reisa eiga að vera 18 fermetrar að stærð hvert um sig, ásamt 10 fermetra viðbyggingu með salernis- og hreinlætisaðstöðu. Þá er og gert ráð fyrir tveimur þjónustubyggingum til viðbótar á reitnum.

Heimild: Mbl.is