Home Fréttir Í fréttum 19.03.2026 RARIK ohf. – Strenglögn – Lón – Austurland

19.03.2026 RARIK ohf. – Strenglögn – Lón – Austurland

18
0
Mynd: RARIK

RARIK ohf., kt. 520269-2669, óskar eftir tilboðum í útboðsverkið: Strenglögn – Lón – Austurland nr. 26005.

Verkið er í Lóni í Sveitarfélaginu Hornafirði. Leggja á háspennustreng inn í Stafafellsfjöll og frá Brekku að Aðalbóli. Einnig frá Reyðará að Holti. Stofnstrengur verður lagður frá Brekku að Aðalbóli og hjálparstrengir út frá honum. Uppsetning spennistöðva, háspennutengiskápa og rofahúsa á leiðinni.

Heildarlengd plægingaleiða er um 20km og gert er ráð fyrir að setja upp 13 jarðspennistöðvar, 2 háspennutengiskápa og 2 rofahús.

Verktími er frá 07.04.2026 til 15.06.2026.

Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.

Útboðsgögn afhent: 16.02.2026 kl. 10:36
Skilafrestur 19.03.2026 kl. 11:00

Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.

Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK

Sjá frekar.