
Vegagerðin áætlar að umferðaröryggisúrbætur, styrking og endurbætur á veginum yfir Fjarðarheiði, miðað við núverandi vegbreidd, kosti um 2 til 2,5 milljarða.
Vegurinn samræmist í dag ekki þeim kröfum sem um hann eru gerðar, en til að mynda þyrfti hann að vera 2-2,5 metrum breiðari. Kostnaður við breikkunina gæti numið 6 til 7 milljörðum.
Þetta kemur fram í minnisblaði Vegagerðarinnar sem unnið var fyrir innviðaráðuneytið í byrjun árs. Austurfrétt greindi fyrst frá.
Endurbætur ekki greindar út af jarðgöngum
Seyðisfjarðarvegur sem liggur um Fjarðarheiði er hæsti fjallvegur í stofnvegakerfi landsins.
Vegurinn, sem er um 25 km langur, er eina vegtenging Seyðisfjarðar og er hann talinn sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu, að því er fram kemur í minnisblaðinu.
Þar segir að ekki hafi verið lagt í mikla vinnu við skoðun og greiningu á endurbótum á veginum undanfarin ár í ljósi þess að jarðgöngu áttu að leysa hann af hólmi „innan tíðar“. Í dag liggur fyrir að ekki verður af þeim Fjarðarheiðargöngum í bráð.
Göngin eru ekki lengur að finna á forgangslista ríkisins þrátt fyrir að hafa áður vermt efsta sæti hans.
Vegurinn aðeins 6,5 til 7 metra breiður
Þar sem ekki er nýlega búið að vinna greiningu á endurbótum byggir minnisblað Vegagerðarinnar á eldri umferðaröryggisúttekt.
Í minnisblaðinu er lagður fram áætlaður kostnaður við þrenns konar framkvæmdir.
Í fyrsta lagi eru það framkvæmdir við umferðaröryggisaðgerðir á vegi og öryggissvæði vegar. Áætlaður kostnaður er metinn á um 500 milljónir. Aðgerðirnar felast í meginatriðum í að setja niður vegrið og minnka bratta vegfláa og lagfæringum á öryggissvæði.
Í öðru lagi eru það framkvæmdir við styrkingar og endurbætur miðað við núverandi vegbreidd. Tekið er fram að vegurinn sé missiginn, með hjólförum og kantskemmdum. Þá sé burði víða ábótavant og slitlag orðið lélegt. Sementsfesta þarf mestan hluta vegarins svo styrking og endurbætur, miðað við núverandi vegbreidd, gætu kostað um 1,5 til 2 milljarða.
Í þriðja lagi er það breikkun vegarins. Seyðisfjarðarvegur samræmist í dag ekki þeim kröfum sem um hann eru gerðar. Í minnisblaðinu segir að vegur af þessari gerð ætti að vera 9 metra breiður skv. vegaskrá. Aftur á móti er vegurinn aðeins um 6,5 til 7 metra breiður. Ef breikka ætti veginn þannig að hann myndi ná 9 metrunum gæti það kostað 6 til 7 milljarða.
Í minnisblaðinu er þó tekið fram að breikkun upp í 8 metra myndi strax auka öryggi verulega og sú framkvæmd myndi aðeins kosta um 4 til 5 milljarða, gróflega reiknað.
„Ljóst er að núverandi vegstæði mun ekki fullnægja kröfum um langhalla og verður að skoða það sérstaklega komi til framkvæmda,“ segir í minnisblaðinu.
Heimild: Mbl.is











