Bæjarfulltrúi minnihlutans í Kópavogi ætlar að óska eftir við bæjarstjórn að innri endurskoðun Kópavogsbæjar geri úttekt á uppbyggingu nýs Kársnesskóla sem hefur farið tæpa tvo milljarða fram úr áætlun.
Bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi ætlar að óska þess að innri endurskoðun Kópavogsbæjar geri úttekt á framkvæmdum við nýjan Kársnesskóla. Hún segir ákvarðanir meirihlutans hafa reynst kostnaðarsamar.
Heildarkostnaður vegna framkvæmda við nýjan Kársnesskóla hleypur á rúmum átta komma fjórum milljörðum, samkvæmt gögnum sem voru rædd í bæjarráði Kópavogs í vikunni.
Miðað við kostnaðaráætlun á núvirði hefur kostnaður við verkið farið tæpa tvo milljarða fram úr áætlun. Framkvæmdin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig – bærinn rifti samningi við ítalskan verktaka fyrir þremur árum vegna galla á verkinu.
Bærinn hefur nú stefnt móðurfélagi verktakans vegna tjóns sem af hlaust og reynir að fá það bætt fyrir dómi.
„Ég held að þessi bygging verði kennslubókardæmi um hvernig á ekki að byggja opinberar byggingar. Tölurnar sem berast núna,“ segir Theodóra Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Kópavogi.
Vill að betur sé farið með skattfé
„Það er auðvitað átakanlegt að sjá hvað skólinn er orðinn dýr og allt ferlið, og löngu áður en Ítalarnir komu að þessu hefur verið meira og minna þyrnum stráð alveg síðan útboð fór fram á hönnun skólans og útboðslýsing var gerð,“ bætir hún við.
Hvað var það nákvæmlega sem var þyrnum stráð áður en ítalarnir komu að þessu?
„Raunverulega bara útboðsgögnin og þessar leiðar voru valdar og ákvarðanir sem voru teknar á því tímabili voru líka umdeildar. Þannig að ég held að það þurfi raunverulega að fá úttekt á málinu í heild sinni.“
Hafiði krafist þess innan bæjarstjórnarinnar?
„Nei en ég mun óska þess að innri endurskoðun Kópavogsbæjar fari í úttekt á málinu í heild sinni, svona má ekki endurtaka sig, við verðum að nota skatttekjur íbúa með ábyrgari hætti.“

RÚV
Bæjarstjóri Kópavogs sagði í fréttum í gær að það sé ekki hægt að ræða heildarkostnað við verkið fyrr en þau fá úr því skorið hversu mikið tjón fæst bætt frá ítalska verktakanum. Ábyrgðin liggi hjá þeim.
Theodóra vonast til að hægt verði að læra af þessu en hún gagnrýnir jafnframt upplýsingaflæði til bæjarráðs – eða skort á því.
„Síðustu tölur sem við kjörnir fulltrúar í bæjarráði sáum voru frá því í apríl í fyrra, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir um upplýsingar. Við áttum að fá mánaðarskýrslur en þær bárust ekki. Kópavogsbær, eftir riftun, ákvað að nýta sér heimild í lögum að bjóða framkvæmdina ekki út, þá var skólinn bara hálfnaður og það hefur augljóslega reynst mjög dýrt, held ég.“
Heimild: Ruv.is












