Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vonast til að sprengingum linni innan 10 daga

Vonast til að sprengingum linni innan 10 daga

154
0
Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3. M3 fer fyrir framkvæmdunum. mbl.is/sisi/Eggert Jóhannesson

Vonast er til þess að sprengingarvinnu við Vesturbugt í Reykjavík muni ljúka innan 10 daga.

Þetta segir Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3 fasteignarþróunar, í samtali við mbl.is en fyrirtæki hans fer fyrir framkvæmdunum við Vesturbugt þar sem áformað er að 177 íbúðir rísi við gömlu höfnina.

Greint var frá því í gær að íbúar í gamla Vesturbænum væru margir hverjir orðnir mjög þreyttir á tíðum sprengingum við höfnina og höfðu þeir sumir hverjir áhyggjur af þeim áhrifum sem sprengingarnar kynnu að hafa á húsakost og lagnainnviði í elstu byggð borgarinnar.

Fylgir þessu óhjákvæmilega titringur

„Við erum núna að sprengja klöppina. Það að sprengja tekur skemmra af heldur en að fleyga sem tekur lengra tímabil með tilheyrandi hávaða. Óhjákvæmilega fylgir því þó titringur þegar verið er að sprengja í klöpp sem liggur kannski upp í gamla Vesturbæinn. Við vonumst til að klára þennan áfanga á viku eða tíu dögum til viðbótar,“ segir Örn.

Framkvæmdirnar hafa gengið vel til þessa að sögn Arnar.

„Það hefur gengið vel. Við erum að reyna að komast í það að klára klöppina, hún liggur þarna efst upp í Mýrargötu og þar aðeins niður. Vonandi erum við að klára þetta á þessum tíma.“

Vonast til að valda ekki skemmdum á innviðum

Eins og áður segir lýstu einhverjir íbúar í gamla Vesturbænum yfir áhyggjum af því hvaða áhrif sprengingarnar hefðu á húsakost og lagnainnviði, sem eru viðkvæmari en ella á þessum slóðum.

„Ég vona að svo sé ekki. Við dreifðum miðum í húsin þarna og annað slíkt. Ég hvet bara fólk til að mynda hjá sér húsin áður en þetta fer af stað. Það er oft tilfinningin að þetta sé meira en þetta er, þetta er eins og litlir skjálftar. Ef fólk telur eitthvað slíkt vera þá getur það snúið sér til okkar og það er þá skoðað hverju sinni. Þetta er allt gert eftir verklagsreglum um sprengingar,“ segir Örn um áhyggjur íbúa.

Framkvæmdir standa nú yfir á reitnum við Hlésgötu 1 en síðar meir munu framkvæmdir hefjast á reitnum við Hlésgötu 2.

„Við erum enn að vinna að byggingarleyfi á hinum reitnum en það mun líða einhver tími og mun ekki gerast strax. Það er einhver klöpp þar og það þarf bara að meta það þegar búið er að moka ofan af henni hversu mikið þarf að sprengja þar. Það þarf að sprengja fyrir kjallaranum, það er bílakjallari og fleira,“ segir Örn sem áætlar að framkvæmdir við Hlésgötu 1 muni ljúka á næstu tveimur og hálfu eða þremur árum.

Heimild: Mbl.is