Home Fréttir Í fréttum Útboð framundan vegna endurbóta í Markholti í Mosfellsbæ

Útboð framundan vegna endurbóta í Markholti í Mosfellsbæ

124
0
Mynd: Mosfellsbær

Umhverfissvið Mosfellsbæjar hefur fengið heimild bæjarráðs til að bjóða út endurbætur í Markholti einni af elstu götum bæjarins. Til stendur að endurnýja allar veitulagnir vegna aldurs þeirra, það er fráveitu, hitaveitu og vatnsveitu. Auk þess sem götulýsing verður einnig endurnýjuð og Veitur ohf. munu samhliða þessu verkefni endurnýja raflagnir í götunni.

Boðað verður til íbúafundar til að kynna framkvæmdina sem er umfangsmikil og verður skipt í tvo áfanga til að tryggja að íbúar hafi ávallt aðgang að húsnæði sínu og nægum bílastæðum. Upplýsingar verða veittar í reglulegum kynningarbréfum og birtar á samfélagsmiðlum á meðan framkvæmd stendur.

Kostnaðaráætlun verksins hljómar uppá 255,1 m.kr. Aðal framkvæmdatíminn verður frá mars og fram í október 2026 en vinna vegna inntaka, gróðurs og lokafrágangs getur náð inn í fyrri hluta árs 2027.

Heimild: Mosfellsbær