Home Fréttir Í fréttum 09.02.2026 Múlaborg. Þak, gluggaskipti og klæðning

09.02.2026 Múlaborg. Þak, gluggaskipti og klæðning

18
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Múlaborg. Þak, gluggaskipti og klæðning, útboð nr. 16254.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Framkvæmd felst í gluggaskiptum, uppbyggingu nýs þaks og endurklæðningu á göflum í leikskólanum Múlaborg, Ármúla 8a, 108 Reykjavík.
Verkið er að fjarlægja núverandi klæðningu af þaki 350 m2 millibyggingar ásamt þakgluggum þak. Á steypta plötu kemur bræddur asfaltpappi, síðan sniðskorinn einangrun og síðan flipafestur þakdúkur ofan á einangra. Endurnýja skal alla þakglugga Að skipta út öllum gluggum og hurðum á langhliðum (vestur og austur) sem snúa að millibyggingu ásamt suðurhlið millibyggingar. Að klæða langhliðar (vestur og austur) sem snúa að millibyggingu ásamt suðurhlið millibyggingar.
Áætluð lok framkvæmdatíma: 15. desember 2026.

Vettvangsskoðun: Á framkvæmdastað,  30. janúar 2026,  kl. 14:00

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00: þann 23. janúar 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 9. febrúar 2026. 

Sjá frekar.